Steinsteypufélag Íslands
  • Heim
  • Fréttir
  • Steinsteypudagurinn
    • Steinsteypudagur 2020
    • Steinsteypudagur 2019
    • Steinsteypudagur 2018
    • Steinsteypudagur 2017
    • Steinsteypudagur 2016
    • Steinsteypudagur 2015
    • Steinsteypudagur 2014
    • Steinsteypudagur 2013
    • Steinsteypudagur 2012
    • Steinsteypudagur 2011
    • Steinsteypudagur 2010
    • Steinsteypudagur 2009
    • Steinsteypudagur 2008
    • Steinsteypudagur 2007
    • Steinsteypudagur 2006
    • Steinsteypudagur 2005
    • Steinsteypudagur 2004
    • Steinsteypudagur 2003
    • Steinsteypudagur 2002
  • Fréttabréf
  • Steinsteypuverðlaunin
    • Steinsteypuverðlaunin 2019
    • Steinsteypuverðlaunin 2015
    • Steinsteypuverðlaunin 2013
    • Steinsteypuverðlaunin 2011
    • Steinsteypuverðlaunin 2010
  • Nemendaviðurkenningar
  • Um félagið
    • Stjórn félagsins
    • Lög félagsins
    • Stofnfundur félagsins
    • Heiðursfélagar
  • Tenglar
  • Styrktarmeðlimir
  • Gerast félagi

Snæfellsstofa hlaut Steinsteypuverðlaunin 2016

24/2/2016

1 Comment

 
​Steinsteypuverðlaunin 2016 voru veitt í fimmta sinn við hátíðlega athöfn á Steinsteypudeginum 2016 á Grand Hóteli þann 19. febrúar 2016 en þau eru veitt fyrir mannvirki þar sem saman fer frumleg og vönduð notkun á steinsteypu í manngerðu umhverfi.
 
Að þessu sinni er það Snæfellsstofa, gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs að Skriðuklaustri, sem hlýtur verðlaunin. Álit dómnefndar er að í þessu verki hafi hönnuðum tekist með efnisvali og formi að skírskota til umhverfisins í ágætu samspili og köllun til náttúrunnar. Tærleiki glersins minnir á himininn eða snævi þakta grund, þegar svo ber undir, málmurinn úr iðrum grjótsins, viðurinn í gróandanum og steinsteypan sem kallast á við melinn. Form byggingarinnar endurspeglar svo jarðfræði og landmótun fjallanna. Það er Vatnajökulsþjóðgarður sem er eigandi verksins. Um hönnun sáu ARKÍS arkitektar, Efla og VERKÍS, framkvæmd var í höndum VHE vélsmiðju og steypan kom frá Steypustöðinni á Egilsstöðum. Viðurkenningin er veitt mannvirkinu og öllum þeim sem komu að hönnun og byggingu.
 
Valnefnd Steinsteypuverðlaunanna er skipuð eftirtöldum:
 
Þorbjörg Hólmgeirsdóttir, formaður nefndar og fulltrúi Steinsteypufélags Íslands
Ólafur H. Wallevik frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Björn Marteinsson tilnefndur af Verkfræðingafélagi Íslands
Jóhann Einarsson tilnefndur af Arkitektafélagi Íslands
Steinþór Kári Kárason frá Listaháskóla Íslands
 
Það er Steinsteypufélag Íslands sem stendur fyrir verðlaununum. Verðlaunin voru fyrst veitt árið 2010. Eftirtalin mannvirki hafa áður hlotið verðlaunin:
2010      Göngubrýr yfir Njarðargötu og Hringbraut
2011      Sundlaugin Hofsósi
2013      Nýja bíó
2015      M-laga sjónsteypa í tengibyggingu íþróttamannvirkja í Grindavík
​
Picture
1 Comment

Steinsteypudagurinn 2016 - dagskrá

14/2/2016

0 Comments

 
Steinsteypudagurinn 2016 verður haldinn þann 19. febrúar næstkomandi á Grand hótel. Hér að neðan má sjá dagskrá Steinsteypudagsins í ár - skráning á steinsteypufelag@steinsteypufelag.is fyrir 17. febrúar. Hlökkum til að sjá ykkur!
​
Picture
0 Comments

Skráning er hafin á Steinsteypudaginn 2016!

10/2/2016

0 Comments

 
Steinsteypudagurinn 2016 verður haldinn þann 19. febrúar á Grand Hótel. Von er á spennandi og fræðandi dagskrá en dagskráin mun birtast á morgun. Hægt er að senda tölvupóst á steinsteypufelag@steinsteypufelag.is eða fylla inn skráningarformið hér að neðan. Hlökkum til að sjá ykkur!
Picture

    Skráning á Steinsteypudaginn 2016

Submit
0 Comments

    Eldri fréttir

    January 2023
    December 2022
    November 2022
    October 2022
    September 2022
    May 2022
    April 2022
    March 2022
    February 2022
    November 2021
    October 2021
    September 2021
    May 2021
    April 2021
    February 2021
    January 2021
    December 2020
    November 2020
    September 2020
    February 2020
    May 2019
    February 2019
    January 2019
    December 2018
    November 2018
    February 2018
    December 2017
    May 2016
    April 2016
    February 2016
    January 2016
    December 2015
    April 2015
    February 2015
    December 2014
    October 2014
    September 2014
    May 2014
    April 2014
    March 2014
    February 2014
    January 2014
    December 2013

    RSS Feed