Þriðjudaginn 24. nóvember næstkomandi mun Steinsteypufélag Íslands standa fyrir opnum fundi um Steinefni í Steinsteypu. Fundurinn verður rafrænn í gegnum Teams og hefst hann klukkan 10 og stendur til 11.30.
Dagskrá fundarins er svohljóðandi:
Framleiðsla og notkun steinefna í steypu
– Børge Johannes Wigum, jarðverkfræðingur, Hornsteinn/HeidelbergCement Northern Europe.
Prófunaraðferðir og kröfur til steinefna í steinsteypu
- Alexandra Björk Guðmundsdóttir, jarðfræðingur – BM Vallá.
Notkun og áhrif mismunandi steinefna í fersksteypu
- Andri Jón Sigurbjörnsson, jarðfræðingur – Steypustöðin.
Umræður
Hlekk á fundinn á Teams má finna HÉR.
Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband við okkur: steinsteypufelag@steinsteypufelag.is
Hlökkum til að sjá sem flesta á fyrsta opna rafræna fundi Steinsteypufélagsins.