Stjórn Steinsteypufélags Íslands hefur ákveðið að velja steinsteypt mannvirki ársins árið 2019. Veitt verður viðurkenning fyrir mannvirki á Íslandi þar sem saman fer áhugaverð og vönduð notkun á steinsteypu í manngerðu umhverfi.
Við valið verður haft að leiðarljósi að mannvirkið:
- Sýni steinsteypu á áberandi hátt.
- Sé framúrskarandi vegna arkitektúrs, verkfræðilegra lausna, gæði steinsteypu og handverks.
- Búi yfir frumleika og endurspegli þekkingu í meðferð og notkun steinsteypu. Gæði og áferð steinsteypu vega þungt í mati.
- Auðgi umhverfið, inniberi gæði, glæsileik og nytsemi og sýni augljósan metnað í samhengi við umhverfi sitt.
- Sé byggt á síðustu fimm árum og í notkun.
Leitað er eftir ábendingum frá verk-, tækni- og byggingafræðingum, arkitektum, listamönnum og iðnaðarmönnum og frá skipulags- og bygginganefndum.
Óskað er eftir því að ábendingar berist félaginu fyrir 20. janúar 2018. Þeim fylgi eftirtalin gögn:
- heiti mannvirkis, staðsetning og eigandi
- verkkaupi
- hönnunarteymi
- framkvæmdaaðili og - framkvæmdaár
- hvenær tekið í notkun
- stutt lýsing á mannvirki, kennistærðir og hlutverk steinsteypu
- ljósmyndir og, ef vill, myndbönd (teikningar óþarfar)
Tillögur skulu sendast á netfang félagsins: steinsteypufelag@steinsteypufelag.is
Stjórn Steinsteypufélags Íslands áskilur sér rétt til að meta mannvirki á innsendum gögnum sem og að óska eftir frekari upplýsingum um verkið.
Mannvirki sem hlotið hafa Steinsteypuverðlaunin má finna hér á heimasíðunni okkar.
Stjórn Steinsteypufélags Íslands