Þemafundur í dag: Steinsteypa – Verklýsingar og kröfur

Kæru félagar,

Við viljum minna á fundinn okkar í dag, fimmtudaginn 29. apríl á Teams.

Þemað að þessu sinni er: “Steinsteypa: Verklýsingar og kröfur” og fundarstjóri er Ingunn Loftsdóttir, varaformaður Steinsteypufélagsins. 

Fyrirlesarar eru þrír og koma með stutt erindi frá framleiðanda, eftirliti og verktaka:

“Gæði steinsteypu – frá teikningu í mót” – Kai Westphal, Steypustöðin. 

“Til hvers eru verklýsingar” – Guðbjartur Jón Einarsson, Mannvit. 

“Unnið eftir verklýsingum – Sýn verktaka” – Heimir Rafn Bjarnason, Jà Verk. 

Mikil áhersla verður lögð á umræður á þessum þemafundi og hvetjum við fundarmenn til að taka þátt.
Hlekk á fundinn má finna hér og með því að smella á auglýsinguna þá opnast hún í nýjum glugga.

Hlökkum til að sjá sem flesta.

Kveðja, Stjórnin

 


 
Deila á samfélagsmiðlum: