Fjaðurstuðull – Morgunkaffi 6.maí Dagskrá


 
Næstkomandi þriðjudag, 6.maí heldur Steinsteypufélag Íslands morgunkaffi sem ber heitið: „Hærri fjaðurstuðull, hærra steinsteypuverð?“ þar sem rætt verður hvaða áhrif hlutefni hafa á fjaðurstuðul og hvaða áhrif fjaðurstuðull hefur á byggingarhluta og færslur þeirra. 

Fundurinn verður haldinn í sal M105 í Háskólanum í Reykjavík, hefst fundurinn kl. 9:00 og lýkur kl. 11:40. Boðið verður upp á kaffi og með því fyrir fund og í kaffihléinu. 

Dagskrá er sem hér segir:

09:00 Elasticity modulus of concrete 
– Prófessor Kamal H. Khayat, Missouri University of Science and Technology

09:30 Breytileiki fjaðurstuðuls 
– Prófessor Ólafur H. Wallevik, Nýsköpunarmiðstöð Íslands & HR

09:50 Mekanískir eiginleikar fylliefna í steinsteypu 
– Kristinn Lind Guðmundsson, jarðfræðingur Steypustöðin

10:10 Kaffihlé 

10:30 Burðarþolshönnun með tilliti til fjaðurstuðuls 
– Haukur J. Eiríksson, Háskóli Íslands & Hnit

10:50 Pallborðsumræður
– Fyrirlesar ásamt Einari Einarssyni, BM-Vallá

Skráning á: [email protected] – Allir velkomnir !

Deila á samfélagsmiðlum: