Hvernig byggjum við vistvæna framtíð?

Steinsteypufélagið vill benda á áhugavert innlegg strax eftir hádegismat á Steinsteypudegi en þá verður fjallað um hvernig við getum byggt vistvænni framtíð og hvaða hindranir og lausnir eru á vegferðinni að aukinni notkun á vistvænni steypu.

Eins og flestir vita og vel hefur verið kynnt á vettvangi Steinsteypufélagsins voru gerðar breytingar á steypukafla byggingarreglugerðar í sumar er leið. Hins vegar eru vísbendingar um að litlar sem engar breytingar sé að merkja í innkaupum á vistvænni steypu. Því verður velt upp hvort styðja þurfi betur við innleiðingu þessara breytinga á markaðnum.

Boðið verður upp á opnar umræður meðal þátttakenda um það hvernig því verði best háttað. Hverjar eru hindranirnar í því að vistvænni steypa sé notuð? Hvernig leysum við þær? Hverjir eru kostirnir?

Markmið þessara umræðna er að fá gott fóður í fyrirhugað samstarf HMS og Steinsteypufélags Íslands um gerð fræðsluefnis sem á að styðja ólíka hagaðila við innleiðingu á breyttum steypukafla.

Í ráðstefnulok verða síðan Steinsteypuverðlaunin 2023 veitt en alls bárust átta tilnefningar að þessu sinni. Deginum lýkur síðan með léttum veitingum og þá gefst enn frekara tækifæri til skrafs og ráðagerða, bæði um faglegt efni en ekki síður til tengslamyndunar og gamanmála.

Við bendum áhugasömum á að fjölmenna til að fylgjast með og taka þátt í þessum umræðum en það er upplagt að skrá sig á hálfan dag, sjá skráningarform hér. Skráningu lýkur miðvikudaginn 8. febrúar.

Deila á samfélagsmiðlum: