Nemendaverðlaun Steinsteypufélags Íslands 2015



Steinsteypufélagið hefur á stefnuskrá sinni að veita árlega verðlaun, ein eða fleiri, til nemenda sem hafa nýlega unnið að lokaverkefnum í tækniháskóla eða að meistara- eða doktorsverkefnum.

Áskilið er að verkefnið fjalli um rannsóknir á steinsteypu eða hagnýta notkun steinsteypu, sem a.m.k. að hluta til eru úr íslenskum efnum eða ætluð til notkunar við íslenskar aðstæður.

Hér með er auglýst eftir umsóknum fyrir verðlaunaárið 2015 og skal umsóknum skilað fyrir 12. febrúar 2015 til Steinsteypufélags Íslands með tölvupósti: [email protected]. Steinsteypufélag Íslands áskilur sér einnig rétt til að hafna öllum umsóknum.

Í umsókn skal m.a. koma fram nafn umsækjanda, heiti verkefnis ásamt ítarlegri lýsingu, heiti skóla/stofnunar sem verkefnið er unnið við og nafn/nöfn leiðbeinanda.

Afhending nemendaverðlaunanna verður á Steinsteypudaginn 2015, þann 20.febrúar næstkomandi.



Afhending nemendaverðlaunanna 2014
Deila á samfélagsmiðlum: