Nemendaverðlaun Steinsteypufélags Íslands 2016

Steinsteypufélagið hefur á stefnuskrá sinni að veita árlega verðlaun, ein eða fleiri, til nemenda sem hafa nýlega unnið að lokaverkefnum í tækniháskóla eða að meistara- eða doktorsverkefnum.

Áskilið er að verkefnið fjalli um rannsóknir á steinsteypu eða hagnýta notkun steinsteypu, sem a.m.k. að hluta til eru úr íslenskum efnum eða ætluð til notkunar við íslenskar aðstæður.

Hér með er auglýst eftir umsóknum fyrir verðlaunaárið 2016 og skal umsóknum skilað fyrir 10. febrúar 2016 til Steinsteypufélags Íslands með tölvupósti: [email protected]. Steinsteypufélag Íslands áskilur sér einnig rétt til að hafna öllum umsóknum.

Í umsókn skal m.a. koma fram nafn umsækjanda, heiti verkefnis ásamt ítarlegri lýsingu, heiti skóla/stofnunar sem verkefnið er unnið við og nafn/nöfn leiðbeinanda.

Afhending nemendaverðlaunanna verður á Steinsteypudaginn 2016, þann 19.febrúar næstkomandi.

 
Afhending nemendaverðlaunanna 2014
Deila á samfélagsmiðlum: