Nemendaviðurkenningar Steinsteypufélags Íslands

Viðurkenning til námsmanna sem klárað hafa lokaverkefni á sviði steinsteypu.

Steinsteypufélag Íslands veitir árlega viðurkenningar til námsmanna, sem hafa klárað lokaverkefni sín í tækniskóla eða í háskóla. Áskilið er að verkefnið fjalli um grunnrannsóknir á steinsteypu eða tengt notkun steinsteypu, sem a.m.k. að hluta til eru úr íslenskum efnum eða ætluð til notkunar við íslenskar aðstæður.
 
Umsóknum skal skilað fyrir 10. febrúar, til Steinsteypufélags Íslands, á tölvupósti: [email protected]. Stjórn félagsins áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Í umsókn skal m.a. koma fram nafn umsækjanda, heiti verkefnis ásamt ítarlegri lýsingu, heiti stofnunar sem verkefnið var unnið við og nafn/nöfn leiðbeinanda.

Þeir nemendur sem hljóta viðurkenningu frá félaginu munu fá tækifæri til að kynna verkefnin sín á Steinsteypudeginum sem haldinn verður þann 21. febrúar næstkomandi. 
 
Með bestu kveðju, 
Stjórn Steinsteypufélags Íslands

Deila á samfélagsmiðlum: