Nýtt efni á youtube rás félagsins – hvað er framundan

Nýtt efni á YOUTUBE rás félagsins – endilega skráið ykkur í áskrift
Í byrjun nóvember var fjarfundur um alkalivikni í steinsteypu. Tveir frummælendur voru á fundinum. Børge Johannes Wigum fjallaði um nýja byggingarreglugerð og RILEM prófanir og Guðbjartur Jón Einarsson sagði frá áhugaverðum niðurstöðum úr veðrunarstöð. Þetta eru mjög fróðleg erindi og við hvetjum ykkur að horfa á þau.Steinsteypudagur 10. febrúar 2023 – Sigmál
Undirbúningur fyrir næsta Sigmál og Steinsteypudag 2023 er í fullum gangi. Félagar eru hvattir til að senda inn tillögur að greinum og/eða erindum. Þetta má senda á netfang félagsins, [email protected], eða beint á þá sem eru í stjórn. Steinsteypudagur verður 10. febrúar, takið daginn frá!

ESCN Samtök Steinsteypufélaga í Evrópu – Leið til sjálfbærari bygginga!
Þann 14. febrúar n.k. verður næsta webinar ESCN. Þema  þess fundar er: „Binders and concrete for the next decade“. Við minnum á fundi ESCN haustið 2021 en Sigriður Ósk Bjarnadóttir var með erindi og Børge J. Wigum var fundarstjóri. 

Aðrar fréttir
Í öðrum fréttum, þá var haustfundur um mannvirkjajarðfræði, sem haldinn var í samstarfi fimm félaga, fjölsóttur og vel heppnaður. Ágrip erinda og veggspjalda eru aðgengileg á heimasíðu Steinsteypufélagsins.

Kær kveðja, stjórnin

Deila á samfélagsmiðlum: