Sement gærdagsins og dagsins í dag-Steinsteypa morgundagsins.
Eftir Pierre- Claude Aitcin
Cement and Concrete Research 30 ( 2000 ) 1349-1359
Lauslega þýtt: Guðmundur Guðmundsson
Úrdráttur:
Steinsteypa, mest notaða byggingarefnið í heiminum, er í stöðugri þróun. Nútíma steinsteypa er meira en eingöngu blanda af sementi, vatni og fylliefnum, nútíma steinsteypa inniheldur sífellt oftar ýmis steinefni, efnablöndur, trefjar o.s.frv. Auðvitað mun hinn almenni markaður vera áfram aðalmarkaðurinn fyrir hefðbundna steinsteypu en sérmarkaðir sem krefjast sérlausna ( „a la carte“ ), t.d. mun svonefnd „smartsteypa“ ( smart concrete ) þróast. Þróun smartsteypu verður við tilkomu nýrrar vísindaþróunar steinsteypu og íblöndunarefna svo og notkun sértækrar mælitækni til þess að skoða innri gerð steypunnar jafnvel örbyggingu ( nanostructure ) hennar. Það er ekki sjálfgefið að nútíma sement standi miklu framar sementi fyrir 30 – 40 árum síðan. Hátt C3S og C3A innihald og hár Blain- fínleiki er ekki lengur nauðsynleg forsenda þess að framleiða steinsteypu með háum byrjunarstyrk, það þarf einfaldlega að lækka vatnssementstöluna eða vatns-bindiefna hlutfallið. Þrýstiþol steypu er háð pökkun sementskornanna og sementsmagninu. Staðreynd er að steinsteypa íblönduð virkri mélu, mélusteypa ( reactive powder concrete ) með 200 MPa þrýstiþoli er gjarnan framleidd með grófu sementi sem hefur alls ekki hátt C3S eða C3A innihald þ.e. sement þar sem einfalt er að stýra þjálninni. Staðlar sem gerðir voru þegar 20-25 MPa steypa var mest notuð eru ekki heppilegir til að meta sement sem nota á með „súper – þjálniefnum“ til þess að gera hágæðasteypu. Hingað til hefur allt of mikið verið lagt upp úr 28 daga þrýstiþoli en ekki hugað nægjanlega að endingu steypunnar.Það er mjög þýðingarmkið að hanna steypublöndur sem viðhalda 28 daga styrk allan lífaldur mannvirkisins við þær aðstæður sem fyrir eru. Að lokum verður sement og steypa að þróast m.t.t umhverfisins með sjálfbærni í huga sem þýðir að ýmsum steinefnum verður í auknum mæli blandað saman við sementgjallið og jafnframt mun vatns-bindiefna hlutfallið lækka til að auka líftíma steypumannvirkja og lengja eins mikið og mögulegt er nýtingu bindiefna og steypufylliefna.
Grein í heild á pdf formi
