www.steinsteypufelag.is
»  Greinar og viðtöl  »  Sérsteypan sf.
Sérsteypan sf.

Rannsókna- og þróunarfyrirtækið Sérsteypan hóf starfsemi á Akranesi árið 1985 og starfaði til ársins 1995. Það var sameign Sementsverksmiðju ríkisins og Íslenska járnblendifélagsins.

Í fyrirtækinu voru rannsökuð og þróuð byggingarefni sem byggðust á notkun sements og kísilryks sem bindefni. Helst var þróunin bundin við viss byggingaefnasvið svo sem tilbúnar múr-eða viðgerðablöndur ásamt búnaði til notkunar þeirra, nýrrar gerðar massasteypu í vega- og virkjanagerð, svonefndrar þjappaðrar þurrsteypu, svo og gerð ýmissa tegunda af trefjasteypu.


Akranesi í apríl 2011
Guðmundur Guðmundsson


Í meðfylgjandi skjali er saga Sérsteypunnar rakin, Guðmundur Guðmundsson ritaði, með hjálp Hróðnýjar Njarðardóttur, dóttur Njarðar Tryggvasonar, framkvæmdastjóra Sérsteypunnar.