Meðfylgjandi eru fyrirlestrar fyrirlesara á verklýsingafundi sem fram fór 2007-11-28 á Grand Hóteli ásamt inngangi formanns Steinsteypufélags Íslands.
»» meiraMeðfylgjandi eru fyrirlestrar fyrirlesara á fylliefnafundi sem fram fór 2007-10-18 á Grand Hóteli ásamt inngangi formanns Steinsteypufélags Íslands.
»» meirabAlmennan fróðleik um steinsteypu og meðhöndlun á henni má m.a. finna á eftirfarandi vefjum:
Undir liðnum http://www.bmvalla.is/vorur/hus/steinsteypa/frodleikur/steinsteypufrodleikur/12559/ eru aðgengilegar og nytsamar upplýsingar um steinsteypu fyrir almennann húsbyggjanda og aðra áhugamenn um steinsteypu.
Ferðafélagi fyrir fróðleiksfúsa:
Í bókinni: "Verk á vegi þínum" er að finna upplýsingar um 115 steinsteypt mannvirki hér á landi. Steinsteypufélag Íslands gefur bókina út í tilefni af 30 ára afmæli félagsins og er henni ætlað að vera ferðalöngum á ferð um landið til gagns og gamans. Bókin er gefin úr bæði á íslensku og ensku.
Bókinni er skipt upp í tíu kafla eftir landshlutum. Þar er að finna myndir af mannvirkjunum, texta um tilurð þeirra og sögu auk upplýsinga um arkitekta, burðarþolshönnuði og aðalverktaka, þar sem þær lágu fyrir. Það er að líkindum nýmæli að annarra hönnuða en arkitekta sé getið í slíkri umfjöllun um mannvirki. Ritstjóri bókarinnar er Gísli Sigurðsson.
Markmiðið með útgáfunni er m.a. að sýna fjölbreytta notkun steinsteypu á síðastliðinni öld en öll mannvirkin nema tvö, Sveinatunga í Norðurárdal og Safnahúsið á Akranesi, eru frá þeim tíma.
Verk á vegi þínum er að nokkru leyti unnin að danskri fyrirmynd. Í ritnefnd voru Ólafur Erlingsson og Jónas Frímannsson, verkfræðingar og Pétur Ármannsson arkitekt. Auk þeirra yfirfóru byggingarfulltrúar víða um land texta um mannviki á þeirra svæði og margir tæknimenn komu með athugasemdir, ábendingar, sömdu texta eða lögðu til myndir.
Bækurnar Verk á vegi þínum og enska útgáfan Works along the way fást hjá Steinsteypufélaginu.
