Steinsteypufélag Íslands
  • Heim
  • Fréttir
  • Steinsteypudagurinn
    • Steinsteypudagur 2020
    • Steinsteypudagur 2019
    • Steinsteypudagur 2018
    • Steinsteypudagur 2017
    • Steinsteypudagur 2016
    • Steinsteypudagur 2015
    • Steinsteypudagur 2014
    • Steinsteypudagur 2013
    • Steinsteypudagur 2012
    • Steinsteypudagur 2011
    • Steinsteypudagur 2010
    • Steinsteypudagur 2009
    • Steinsteypudagur 2008
    • Steinsteypudagur 2007
    • Steinsteypudagur 2006
    • Steinsteypudagur 2005
    • Steinsteypudagur 2004
    • Steinsteypudagur 2003
    • Steinsteypudagur 2002
  • Fréttabréf
  • Steinsteypuverðlaunin
    • Steinsteypuverðlaunin 2019
    • Steinsteypuverðlaunin 2015
    • Steinsteypuverðlaunin 2013
    • Steinsteypuverðlaunin 2011
    • Steinsteypuverðlaunin 2010
  • Nemendaviðurkenningar
  • Um félagið
    • Stjórn félagsins
    • Lög félagsins
    • Stofnfundur félagsins
    • Heiðursfélagar
  • Tenglar
  • Styrktarmeðlimir
  • Gerast félagi

Steinsteypuverðlaunin 2011 - Sundlaugin á Hofsósi

Picture
Sundlaugin á Hofsósi fær verðlaun fyrir frumlega og vandaða notkun á steypu

Ólafur Ragnar Grímsson afhenti Steinsteypuverðlaunin 2011 á Grand hótel Reykjavík, föstudaginn 18.febrúar að viðstöddu margmenni á Steinsteypudeginum 2011. Þetta var í annað sinn sem verðlaunin voru afhent en árið áður voru það göngubrýr yfir Njarðargötu og Hringbraut sem fengu viðurkenninguna.

Steinsteypuverðlaunin eru veitt fyrir mannvirki þar sem saman fer frumleg og vönduð notkun á steinsteypu í manngerðu umhverfi.SundlaugináHofsósi hlaut verðlaunin í ár en það voru þær Steinunn Jónsdóttir og Lilja Pálmadóttir sem gáfu Sveitarfélaginu Skagafirði sundlaugina ári áður. Um hönnun mannvirkisins sáu Basalt arkitektar, Va arkitektar og Verkís en framkvæmd var í höndum Sveinbjörns Sigurðssonar hf. Viðurkenninguna hlaut mannvirkið og allir þeir samstarfsaðilar sem komu að hönnun þess og byggingu. Ólafur Ragnar sagði, við þetta tilefni, einkar ánægjulegt að sjá hvorutveggja breidd í vali mannvirkja og það óháð staðsetningu. Valið var í höndum nefndar sem skipuð var fulltrúum frá Arkitektafélags Íslands, Verkfræðingafélaginu, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Listaháskólanum undir forystu Steinsteypufélagsins. Sigríður Sigþórsdóttir frá Basalt arkitektum tók á móti verðlaununum sem þetta árið voru styrkt af Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Íbúðalánasjóði og Mannvirkjastofnun.