www.steinsteypufelag.is
»  Steinsteypudagar  »  Steinsteypudagur 1999
Steinsteypudagur 1999

Efni á Steinsteypudegi 1999

1. Sprungu-hreyfingaþol húða - ný prófunaraðferð.
Rögnvaldur S. Gíslason, verkfræðingur hjá Rb

Hjá Rb hefur verið lokið við að þróa prófunaraðferð fyrir þol gúmfjaðurmagnaðra húða gegn hreyfingum sprungna. Verkefnið var unnið að frumkvæði Rb fyrir Nordtest. Prófunaraðferðin, sem er afsprengi af íslenskum rannsóknum, er sérstaklega mikilvæg í tengslum við steinhús sem eru máluð að utan. Með aðferðinni má fá innbyrðis samanburð á þoli málningarhúða gegn því að rifna við síendurteknar hreyfingar sprungu sem málað er yfir.

2. Mannvirki á Skeiðarársandi
Einar Hafliðason, verkfræðingur og Rögnvaldur Gunnarsson, tæknifræðingur hjá Vegagerðinni

Mannvirki á Skeiðarársandi sem eyðilögðust eða skemmdust í hamfarahlaupinu úr Grímsvötnum í nóvember 1996 hafa nú verið endurbyggð. Greint verður frá hönnunarforsendum þeirra mannvirkja sem byggð voru 1972-74 og reynslu af þeim í aldarfjórðung. Sagt frá aðdraganda hlaupsins 1996, breyttum hönnunarforsendum og endurbyggingu mannvirkja.

3. Viðhald gömlu steinhúsanna
Flosi Ólafsson, múrarameistari og Hjalti Sigmundsson, byggingatæknifræðingur og húsasmíðameistari hjá Línuhönnun.

Fjallað verður um viðhald gömlu steinhúsanna frá 18. og 19. öld. Húsin eiga það sammerkt að vera friðuð og eru að mestu hlaðin úr íslenskugrjóti. Sagt verður frá undirbúningi verkanna, rannsóknum á efnum, skoðun heimilda og þróun aðferða og handverks sem oft er glatað.

4. Hörðnun kísilryksblandaðar steinsteypu við mismunandi hitastig.
Helgi Hauksson, verkfræðingur hjá Rb

Kynntar verða niðurstöður mælinga á hörðnunarferlum steypu við fast hitastig 5, 10, og 20° C. Mælingar voru gerðar fyrir þrjá mismunandi brotþolsflokka, bæði með venjulegu Portlandsementi og með Portland-hraðsementi.

5. Tæringarnemar í steypum mannvirkjum
Jón S. Möller, verkfræðingur hjá Línuhönnun.

Í erindinu verður fjallað um það hvernig nota má nýlega tækni til þess að fylgjast með hættu á tæringu bendistáls í steinsteyptum mannvirkjum.

6. Íslenskt sement - Helstu eiginleikar og notkunarmöguleikar
Dr. Gísli Guðmundsson, jarðfræðingur hjá Rb

Rannsóknir á Rb, í samvinnu við Vegagerðina og Sementsverksmiðjuna, hafa sýnt að íblöndun á slagi út í íslenskt Portlandsement eykur til muna þol steinsteypu við ágengar aðstæður. Nú er svo komið að Sements-verksmiðjan hefur ákveðið að byrja tilraunir með framleiðslu á slíku sementi. Í erindinu verður gerð grein fyrir helstu eiginleikum slíks sements, framleiðsluferli og við hvaða aðstæður æskilegt sé að nota það.

7. Sjálfútleggjandi steypa-þróun síðustu ár.
Dr. Åke Skarendahl, forstjóri CBI (Cement och Betong Institutet) í Stokkhólmi.

Fjallað verður um þróun sjálfútleggjandi steypu í Svíþjóð, sagt frá framkvæmdum þar í landi, þar sem slík steypa notuð og rætt um hvernig til tókst.

8. Sjálfútleggjandi steypa-þróun á Íslandi
Dr. Ólafur Wallevik, verkfræðingur hjá Rb

Í erindinu verður m.a. sagt frá rannsóknum sem gerðar hafa verið hér á landi á sjálfútleggjandi steypu.

9. Sjálfpakkandi steypa - sjónarhorn framleiðandans
Einar Einarsson, verkfræðingur hjá B.M.Vallá

Fjallað verður um þróunarvinnu við sjálfpakkandi steypu hjá BM Vallá ehf, hugsanleg vandamál við framleiðslu, kosti og galla slíkrar steypu, notkunarmöguleika og hagkvæmni.

10. Pallborðsumræður - Staða steypunnar í dag

Inngangserindi fyrir pallborðsumræður.
Vífill Oddsson, verkfræðingur hjá Teiknistofunni Óðinstorgi.

Á undanförnum árum hefur mjög neikvæð umræða farið fram um íslenska steypu. Minna hefur farið fyrir umræðum um kosti steypunnar. Sjálfsagt er að skoða önnur byggingarefni en þau hafa einnig sína galla. Með þeim endurbótum sem gerðar hafa verið á íslenskri steypu s.l. 20 ár þá er steypan í flestum tilfellum ákjósanlegasta byggingarefnið í okkar erfiðu veðráttu.

Stjórnandi, Björn Marteinsson, arkitekt og verkfræðingur hjá Rb.

Þátttakendur:

Guðmundur Pálmi Kristinsson, verkfræðingur hjá byggingadeild Borgarverkfræðings
Guðmundur Kr. Guðmundsson, arkitekt hjá Arkþingi
Jónas Frímannsson, verkfræðingur hjá Ístak
Níels Indriðason, verkfræðingur hjá VST
Víglundur Þorsteinsson, forstjóri B.M.Vallá