www.steinsteypufelag.is
»  Steinsteypudagar  »  Steinsteypudagur 2000
Steinsteypudagur 2000

Efni á Steinsteypudegi 2000

1. Svignun í stálbentri steypu
Dr. Þorsteinn Helgason, prófessor

Gerð var grein fyrir því hvers vegna nauðsynlegt er að fylgjast með svignun burðareininga bæði við hönnun og framkvæmdir. Farið var yfir helstu ákvörðunarþætti hönnunar og gerð grein fyrir áhrifum einstakra þátta. Þá var jafnframt farið yfir helstu atriði sem verktaki þarf að huga að til þess að tryggja að fyrirætlanir hönnuðar nái fram að ganga.

2. Evrópska léttsteypuverkefnið - "Euro-Lightcon"
Edda Lilja Sveinsdóttir, mannvirkjajarðfræðingur hjá Rb

Í verkefninu var gerður samanburður á steypu úr léttum fylliefnum og hefðbundinni steypu til að skoða á hvern hátt léttsteypur falla inn í evrópska steinsteypustaðalinn ENV 206. Verkefnið nær til rannsókna á léttum fylliefnum og steypublöndum úr þeim ásamt prófunum á harðnaðri léttsteypu og forsteyptum einingum.
Í erindinu var verkefnið kynnt og sagt frá helstu niðurstöðum sem snerta íslenska hagsmuni.

3. Utanhúss múr í Svíþjóð
Lennart Kjellman, múrari og kennari við Rekarnegymnasiet Eskilstuna

Í erindinu var fjallað um CD-múr sem er utanhúss múr og algengt er að nota í Svíþjóð. Gerð var grein fyrir efniseiginleikum múrsins og hvernig þeir hafa þróast. Þá var einnig rætt um kalkblöndun í múr og litarefni í múr.

4. Notkun hlaupmyndandi efna í múrblöndur.
Jón B. Ólafsson, byggingatæknifræðingur hjá Sandi-Ímúr

Í erindinu var fjallað um notkun hlaupmyndandi efna í múrblöndur og lýst hvaða áhrif þau hafa á múrblöndur og múrhúðir. Kynntar voru niðurstöður tilrauna sem sýna hvaða áhrif hlaupmyndandi efni hafa á eiginleika múrhúða.

5. Skeiðarvogsbrú
Baldvin Einarsson, verkfræðingur hjá Línuhönnun.

Erindið fjallaði um nýju brúna á mislægum gatnamótum Miklubrautar og Skeiðarvogs. Farið var yfir forsendur fyrir hönnun gatnamótanna og þær aðstæður sem liggja að baki þeirri óvenjulegu lausn sem valin var. Brúnni var lýst, burðarkerfi hennar og búnaði og reynt að skýra þá þætti sem eru með einhverjum hætti óvenjulegir.

6. Deterioration, Service Life and Repair of Concrete Structures-An Overview
Dr. Göran Fagerlund, prófessor við tækniháskólann í Lundi.

The lecture gives an overview of what is known and what is not known in service life design of concrete structures. Important destruction mechanisms are treated from a service life perspective. The importance of moisture in destruction is emphasized. The interrelation between material destruction and structural stability is discussed. Some results of studies of the durability of repaired concrete are presented.

7. Viðgerð á brú í Stykkishólmi með sjálfútleggjandi steypu.
Dr. Ólafur Wallevik og Indriði Níelsson verkfræðingar hjá Rb

Undanfarið hefur verið unnið að viðgerð á brú út í Stykkið í samvinnu við Siglingamálastofnun. Til verksins hefur verið notuð svokölluð sjálfútleggjandi-steinsteypa eða það sem stundum er nefnt "Súl-Pak-steypa". Skilgreining á sjálfútleggjandi steinsteypu er m.a. að hún hefur a.m.k. 265 mm sigmál og viðheldur þjálni sinni í rúmlega eina klst. eftir að steypubíll hefur yfirgefið steypustöð. Í þessum fyrirlestri var saga verksins rakin í stuttu máli ásamt því að sýnt var myndrænt hvernig til hefur tekist. Auk þess voru ræddir kostir og gallar "Súl-Pak-steypu" í samanburði við hefðbundna steinsteypu.

8. Íslensk steinsteypa-umhverfisvænt efni
Dr. Gísli Guðmundsson, jarðfræðingur hjá Rb

Í þessu erindi var fjallað um steinsteypu m.t.t. áhrifa hennar á umhverfið. Umræða og ákvarðanataka sem lýtur að umhverfisvernd er þegar orðin mikilvæg og á nýrri öld mun hún aukast til muna. Sements- og steypuiðnaðurinn mun ekki fara varhluta af þessari umræðu og Ísland verður engin undantekning frá því.

9. Bláa lónið
Sigríður Sigþórsdóttir, arkitekt hjá Vinnustofu arkitekta

Uppbygging ferðamannaaðstöðu Bláa lónsins hefur vakið mikla athygli vegna einstaklega skemmtilegs samspils mannvirkisins og hinnar sérstæðu náttúru sem þar er. Sigríður Sigþórsdóttir fjallaði um verkið í máli og myndum.