www.steinsteypufelag.is
»  Steinsteypudagar  »  Steinsteypudagur 2001
Steinsteypudagur 2001

Efni á Steinsteypudegi 2001

1. Áhrif jarðskjálfta á steinsteyptar byggingar
Dr. Ragnar Sigbjörnsson prófessor við HÍ

Í erindinu fjallaði Ragnar fyrst og fremst um jarðskjálftana á Suðurlandi í sumarið 2000, mælingar, kannanir á skemmdum (á steinsteyptum og hlöðnum húsum), greiningu áraunar, tengsl mældrar hreyfingar og skemmda, og reynadi síðan að draga einhverjar ályktanir sem að gagni gætu komið í hönnun.

2. Staðbundin jarðskjálftáhrif við Þjórsárbrú
Bjarni Bessason, verkfræðingur hjá Verkfræðistofnun

Jarðlagakönnun við Þjórsárbrú hefur leitt í ljós að austanmegin við ána er grágrýtismyndun en að vestanverðu er hraunlag sem hvílir á sjávar- og árseti. Í Suðurlandsjarðskjálftunum í júní árið 2000 mældist mikill munur á yfirborðshreyfingum á austur- og vesturbakka árinnar. Þessi munur hefur mikla þýðingu þegar hönnunarforsendur eru skilgreindar fyrir nýja Þjórsárbrú og á öðrum stöðum þar sem aðstæður eru svipaðar. Í fyrirlestrinum var fjallað um jarðskjálftamælingarnar við Þjórsárbrúna.

3. Raki í steypu hefðbundinna útveggja
Rögnvaldur S. Gíslason, efnaverkfræðingur hjá Rb

Greint var frá helstu niðurstöðum mælinga á borkjarnasýnum úr steypu fjölda útveggja húsa, sem einangruð eru að innan og liggja víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu. Sýnin voru tekin á miðjum vetri úr veggjum, sem á voru mjög mismunandi en vel þekkt kerfi yfirborðsefna að utan. Ýmislegt í niðurstöðunum reyndist vera allfrábrugðið því sem gera má ráð fyrir að flestir hefðu talið að vænta mætti.

4. Betri hljóðvist í fjölbýlishúsum. Nýjar kröfur og praktísk atriði
Steindór Guðmundsson, verkfræðingur hjá Rb

Haustið 1997 voru kynnt drög að nýjum staðli um flokkun á (nýju) íbúðarhúsnæði eftir hljóðvist í þrjá flokka A,B og C.
Við endurskoðun byggingarreglugerðar 1998 voru sett inn leiðbeiningargildi innan sviga um auknar kröfur til hljóðeinangrunar, sem samsvara hljóðvistarflokki C.

Þessar auknu kröfur um hljóðvist kalla á nýjar og breyttar byggingaraðferðir í fjölbýlishúsum. Rb hefur undanfarin ár unnið að rannsóknaverkefnum á þessu sviði í samvinnu við nokkur byggingarfyrirtæki og framleiðendur einangrunarefna. Annars vegar hefur verið skoðað hvað þurfi að gera varðandi hefðbundnar byggingaraðferðir til þess að uppfylla kröfur um flokk C. Hins vegar hafa menn viljað prófa sig áfram í áttina að flokki B. Kynnar voru niðurstöður varðandi hljóðeiginleika varmaeinangrunar með múrhúð innan á útveggjum. Einnig voru kynntar niðurstöður varðandi steypt "fljótandi" hljóðdeyfigólf.

5. Menntun, endurmenntun og kröfur til steypumanna í Noregi
Þorvaldur Nóason, verkfræðingur hjá T.Noason AS

Framleiðsla og medhöndlun ferskrar steypu og aðhlynning við hörðnun hefur mikla þýðingu fyrir líftíma hennar. Gerð var stuttlega grein fyrir því hvernig norski steinsteypuiðnaðurinn tók í sameiningu á þessum málum, með því að auka þekkingu stéttarinnar á steypu. Skýrt var frá hvernig menntun og endurmenntun steypumanna er kerfislega byggð upp í Noregi.

6. Fiber Reinforced Concrete - Testing and Design - State of the Art
Henrik Stang, prófessor við Danmarks Tekniske Universitet

Lack of consistent testing and design guidelines has for a long time been an obstacle for application of fiber reinforced concrete on an industrial scale. A number of international efforts are currently being made in order to provide the basis for such guidelines. The lecture describes the basic approach taken and gives an overview of proposals for testing and design methods currently being made within the research community and within the framework of RILEM.

7. Inngangur að flotfræði
Dr. Ólafur Wallevik verkfræðingur hjá Rb

Flotfræði (rheology) er fræðigreinin um formbreytingu efna undir álagi. Notkun hennar í steinsteyputækni fer sívaxandi í heiminum og segja má að Íslendingar séu í fremstu röð í notkun hennar. Íslenskt hugvit hefur verið notað til að þróa seigjumæli sem seldur hefur verið víðsvegar um heim, allt frá Kína til Bandaríkjanna.
Seigjumælir mælir m.a. flotskerspennu ferskrar steinsteypu í stað sigmáls sem er frekar ónákvæm mæling ásamt plastísks seigjustuðuls sem ekki er hægt að mæla á annan máta. Seigjumælir er mikilvægt tæki í þróun sérsteypu, sem dæmi má nefna hástyrkleika- og sjálfútleggjandi steinsteypu. Rb hefur haldið flotfræðinámskeið (Dr. Wallevik rheology course) í samtals 7 löndum. Hugvitið hefur einnig leitt til þess að Rb hefur verið í fararbroddi varðandi rannsóknir á eiginleikum íblöndunarefna fyrir steinsteypu og haft stór verkefni fyrir stærstu framleiðendur heims, SKW Trosberg, (eigendur Masterbuilders) í Þýskalandi og GRACE í Bandaríkjunum..

8. Vélunninn sandur - úttekt
Dr. Børge Johannes Wigum

Gerð hefur verið úttekt á vinnslu á sandi (0-4 mm) sem er unninn úr föstu bergi (unninn sandur) til að hægt sé að þróa aðferðir á Íslandi til að hefja tilraunavinnslu sem síðan gæti leitt til framleiðslu. Kannað hefur verið hvernig unninn sandur hentar til framleiðslu á hefðbundinni og sjálfútleggjandi steypu, og hver markaðurinn fyrir slíkan sand er hérlendis. Líklegt er að gæði steypunnar aukist, en erlendar rannsóknar hafa m.a. sýnt að dæling er auðveldari og yfirborð verður sléttara.

9. Rýrnunarvarar til varnar sprungu-myndunar í steinsteypu
Guðni Jónsson, verkfræðingur hjá Rb

Rýrnunarvarar eru efni sem komið hafa fram á allra síðustu árum. Þessi efni draga úr sprungumyndun með því að minnka rýrnun til muna, allt að 50%. Um er að ræða yfirborðsvirk lífræn efnasambönd. Virkni þeirra byggist á því að minnka yfirborðsspennur í póruvatninu og á þann hátt dregur úr undirþrýstingi í pórum steypunnar.
Á Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins var í gangi verkefni þar sem þessi efni voru prófuð í múr og steinsteypu. Auk þess sem rýrnun var mæld voru áhrif rýrnunarvara á þjálni, þrýstiþol, beygjutogþol og frostþol rannsökuð.

10. Flugstöð Leifs Eiríkssonar-1. hluti stækkunar
Óskar Valdemarsson forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins

Á síðasta ári var tekin upp sú nýbreytni að fjalla ítarlega um valið mannvirki og einskorða sig þá ekki við steypuþáttinn. Að þessu sinni var fjallað um aðdraganda og forsendur stækkunar á FLE, verkefnisstjórnun, burðarvirki og skipulag byggingarinnar og ráðstafanir vegna þátttöku Íslands í Schengensamkomulaginu.